Ísrael og Íran: Hvað vitum við?

Ísraelsher hóf árásir á Íran í nótt og í framhaldinu …
Ísraelsher hóf árásir á Íran í nótt og í framhaldinu hófu Íranir drónaárásir á Ísrael. AFP

Ísraelsher gerði árásir á Íran í nótt en samkvæmt ísraelskum stjórnvöldum var árásunum beint að kjarnorkuinnviðum Írans sem og hernaðarlegum innviðum.

Íranir hófu í framhaldi umfangsmiklar drónaárásir á Ísrael. Talið er að Íranir hafi beitt meira en 100 drónum sem Ísraelsher skaut niður og hefur neyðarástandi verið lýst yfir í Ísrael.

Háttsettir menn féllu

Hossein Salami, yfirmaður íranska byltingarvarðarins og Mohammad Bag­heri hers­höfðingi féllu í árásunum ásamt sex kjarnorkuvísindamönnum.

Árásir Ísraels hófust klukkan 03:30 að staðartíma eða í kringum miðnætti. Samkvæmt írönskum fjölmiðlum urðu íbúðahverfi meðal annars fyrir árásum.

Nokkrum klukkustundum síðar var tilkynnt um sprengingu við Natanz-kjarnorkuverið, sem er staðsett um 225 kílómetra suður af höfuðborginni. Geislunarstig jókst ekki á Natanz-svæðinu við sprenginguna.

Markviss hernaðaraðgerð gegn írönsku ógninni

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagði árásirnar vera „markvissa hernaðaraðgerð til að draga úr írönsku ógninni við „sjálfa tilveru Ísraelsríkis.“

Netanjahú sagði að árásirnar myndu halda áfram svo lengi sem þess þurfi.

„Á undanförnum mánuðum hefur Íran tekið skref sem það hefur aldrei tekið áður, skref til að vopnvæða auðgað úran. Ef Íranir verða ekki stöðvaðir geta þeir framleitt kjarnorkuvopn á mjög stuttum tíma. Það gæti verið ár eða jafnvel innan nokkurra mánaða. Þetta er skýr og yfirvofandi ógn við tilveru Ísraels,“ sagði Netanjahú í ræðu sinni í nótt.

Hann þakkaði einnig Donald Trump í ræðu sinni fyrir að takast á við kjarnorkuáætlun Írans.

Bandaríkin þvo hendur sínar af árásunum

Bandaríkin sverja af sér að hafa tekið þátt í árásunum. Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir Bandaríkin ekki hafa átt neinn þátt í árásunum eða undirbúningi þeirra og ekki veitt Ísraelsher aðstoð. Sagði hann helsta forgangsatriði Bandaríkjanna vera að vernda bandaríska hermenn á svæðinu.

Utanríkisráðuneyti Írans sagði að Íranir myndu ekki hika við að verja fullveldi Írans á þann hátt sem þeir telja viðeigandi. Í yfirlýsingu ráðuneytisins voru aðgerðir Ísrael kallaðar árásargjörðir og einnig sagt að ríkisstjórn Bandaríkjanna verði einnig látin bera ábyrgð á árásinni.

Hver er kjarnorkuáætlun Írans?

Íran hefur lengi haldið því fram að kjarnorka sé eingöngu til borgaralegra nota í landinu. Nokkur kjarnorkuver eru víðs vegar um Íran.

Mörg ríki, ásamt alþjóðlegu kjarnorkueftirlitsstofnuninni (IAEA), eru hins vegar ekki sannfærð um að áætlanir Írans séu eingöngu til borgaralegra nota.

Fyrr í vikunni lýsti stjórn IAEA því yfir að Íran hefði brotið gegn skuldbindingum sínum um útbreiðslu kjarnorkuvopna í fyrsta skipti í 20 ár. Samkvæmt stofnuninni hefur Íran ekki veitt nægar upplýsingar um birgðir sínar af auðguðu úrani.

Í kjölfarið var birt skýrsla frá IAEA sem segir að Íran hefði auðgað úran upp í 60% hreinleika, sem er næstum því nóg af vopnhæfu úrani til að búa til níu kjarnorkusprengjur.

BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert