Útiloka að mynda ríkisstjórn með Wilders

Frelsisflokkur Wilders mælist stærstur í Hollandi í skoðanakönnunum.
Frelsisflokkur Wilders mælist stærstur í Hollandi í skoðanakönnunum. AFP

Það mun reynast Geert Wilders, formanni hollenska Frelsisflokksins, ansi snúið að komast í embætti forsætisráðherra Hollands en leiðtogi hægri flokksins VVD hefur nú útilokað að mynda ríkisstjórn með Wilders. 

Ríkisstjórn Hollands sprakk á dögunum eftir að Frelsisflokkur Wilders sagði skilið við ríkisstjórnarsamstarfið vegna deilna um innflytjendamál. VVD var einn af þeim flokkum sem tóku þátt í ríkisstjórnarsamstarfinu. 

Dilan Yesilgoz, formaður VVD, tilkynnti hins vegar fyrr í morgun í samtali við hollenska blaðamenn að frekara samstarf við Wilders kæmi ekki til greina.

Setji persónulega hagsmuni ofar þjóðarhag

„Þjóðin okkar þarfnast þroskaðrar forystu, við munum þar að leiðandi ekki starfa áfram með Wilders. Hann setur sína persónulegu hagsmuni ofar þjóðarhagsmunum í hvívetna og mun aldrei sýna ábyrgð gagnvart þjóð sinni,“ segir Yesilgoz.

Wilders brást ókvæða við ummælum Yesilgoz á samfélagsmiðlinum X og sagði ákvörðun Yesilgoz muna koma til með að leiða til fleiri hælisleitenda og frekari útbreiðslu íslam í Hollandi. 

Frelsisflokkur Wilders mælist sem stærsti flokkur Hollands í skoðanakönnunum þessa dagana. Þingkosningar eru á dagskrá í lok októbermánaðar og afar ólíklegt er að Wilders komi til með að mynda ríkisstjórn án stuðnings VVD. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert