Greta Thunberg er á heimleið eftir að skútan Madleen sem hún og aðrir aðgerðarsinnar voru um borð í var stöðvuð af Ísraelsher.
Skútan var stöðvuð í gærdag og sigldi í kjölfarið í ísraelska höfn eftir að Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, hafði fyrirskipað her sínum að hindra för skútunnar.
Utanríkisráðuneyti Ísraels tilkynnti fyrr í morgun á samfélagsmiðlinum X að Thunberg hefði yfirgefið landið í flugi til Frakklands en þaðan mun hún halda til heimalands síns Svíþjóðar.
Farþegum skútunnar var gefin sá kostur að velja á milli þess að yfirgefa landið sjálfviljug eða þá að vera dregin fyrir ísraelska dómstóla. Thunberg valdi því þann kost að snúa til síns heima en fimm aðgerðarsinnar á skútunni hafa neitað að yfirgefa landið og munu því koma fyrir dómstóla.