Skútan Madleen komin í ísraelska höfn

Skútan Madleen í suðurhöfninni í Ashdod í kvöld.
Skútan Madleen í suðurhöfninni í Ashdod í kvöld. AFP/Jack Guez

Skútan Madleen, með 12 aðgerðarsinnum um borð, þar á meðal Gretu Thunberg, sigldi í ísraelsku höfnina í Ashdod klukkan 17.45 í kvöld að íslenskum tíma.

Frá þessu greinir ljósmyndari AFP-fréttaveitunnar.

Skútan var á leiðinni með hjálpargögn til Gasa en Ísraelsher stöðvaði hana í nótt. Sjóher Ísraels kom skútunni í höfn í kvöld.

Isra­el Katz, varn­ar­málaráðherra Ísra­els, skipaði hern­um að koma í veg fyr­ir að skút­an næði að Gasa í gær og hvatti aðgerðarsinn­ana til að snúa við.

Bann Ísraelsmanna á öllum flutningum sjóleiðina til Gasa hefur verið í gildi frá því áður en stríðið hófst, og sagði Katz það nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að palestínskir vígamenn flyttu þannig inn vopn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert