Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, ætlar að kæra ríkisstjórn Bandaríkjanna fyrir að senda hermenn þjóðvarðliðsins til Los Angeles án hans samþykkis.
Newsom greindi frá þessu á X fyrir stuttu.
„Þetta er nákvæmlega það sem Donald Trump vildi. Hann setti olíu á eldinn og sendi þjóðvarðliðið ólöglega til ríkisins.“
Ákvörðun Trumps var í fyrsta skipti síðan árið 1965 sem Bandaríkjaforseti hefur sent út þjóðvarðlið án beiðni frá ríkisstjóra.
This is exactly what Donald Trump wanted.
— Gavin Newsom (@GavinNewsom) June 9, 2025
He flamed the fires and illegally acted to federalize the National Guard.
The order he signed doesn’t just apply to CA.
It will allow him to go into ANY STATE and do the same thing.
We’re suing him.pic.twitter.com/O3RAGlp2zo