Ísraelsher stöðvaði skútuna

Utanríkisráðuneyti Ísrael birti þessa mynd af aðgerðarsinnunum á samfélagsmiðlum eftir …
Utanríkisráðuneyti Ísrael birti þessa mynd af aðgerðarsinnunum á samfélagsmiðlum eftir að skútan var stöðvuð. AFP/Utanríkisráðuneyti Ísrael

Ísraelsmenn komu í veg fyrir að skúta Gretu Thunberg og ellefu annarra aðgerðarsinna kæmist í land á Gasaströndinni.

Madleen-skútan lagði af stað frá Ítalíu með hjálpargögn 1. júní.

AFP-fréttaveitan missti samband við skútuna snemma í morgun.

Greta Thunberg í myndskeiðinu sem Freedom Flotilla Coalition birtu.
Greta Thunberg í myndskeiðinu sem Freedom Flotilla Coalition birtu. AFP

Í tilkynningu frá Freedom Flotilla Coalition, samtökunum sem eiga skútuna, „stöðvuðu ísraelskar hersveitir skútuna með valdi“ klukkan 3:02 í nótt, klukkan 1:02 á íslenskum tíma, er hún nálgaðist Gasa.

„Ef þú sérð þetta myndskeið þá höfum við verið stöðvuð og okkur rænt á alþjóðlegu hafsvæði,“ sagði Thunberg í myndskeiði sem samtökin birtu. Álíka myndskeið birtust af hinum aðgerðarsinnunum. 

Hryðjuverkasamtökin Hamas fordæmdu aðgerðir Ísraelsmanna og sögðu í tilkynningu að skútan hefði verið flutt til ísraelsku hafnarinnar Ashdod.

Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, skipaði hernum að koma í veg fyrir að skútan næði að Gasa í gær og hvatti aðgerðarsinnana til að snúa við.

Bann Ísraelsmanna á öllum flutning sjóleiðina til Gasa hefur verið í gildi frá því áður en stríðið hófst, og sagði Katz það nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að palestínskir vígamenn flyttu þannig inn vopn.

Öryggir og óslasaðir

Eftir að skútan var stöðvuð birti utanríkisráðuneyti Ísrael mynd af aðgerðarsinnunum í björgunarvestum þar sem var verið að bjóða þeim samlokur og vatn.

„Allir farþegar „sjálfu skútunnar“ eru öruggir og óslasaðir,“ sagði í færslu ráðuneytisins. Þar stóð að búist væri við að aðgerðarsinnarnir myndu fara til síns heima.

„Það pínulitla magn af hjálpargögnum sem var um borð sem var ekki neytt af „fræga fólkinu“ verður flutt til Gasa í gegnum raunveruleg hjálparsamtök.“

Frá Gasaströnd.
Frá Gasaströnd. AFP

Eftir meira en tveggja mánaða bann heimiluðu Ísraelsmenn nýlega flutning hjálpargagna til Gasa aftur í gegnum ný samtök, Gaza Humanitarian Foundation (GHF), sem eru studd af Bandaríkjamönnum.

Mannúðarsamtök hafa gagnrýnt GHF og Sameinuðu þjóðirnar neita að vinna með samtökunum vegna áhyggna af starfsháttum þeirra og hlutleysi.

Fjöldi fólks hefur látist nærri dreifingarstöðvum GHF síðan í lok maí, samkvæmt almannavarnadeild Gasa.

Deildin greindi meðal annars frá því að að minnsta kosti tíu létust í árás í gær, þar á meðal fimm almennir borgarar sem urðu fyrir skotum nærri dreifingarmiðstöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert