Skúta með Gretu Thunberg og ellefu aðgerðarsinnum um borð heldur leið sinni á Gasa ótrauð áfram þrátt fyrir skipun Ísraelsstjórnar um að herinn skuli hindra leið skútunnar.
„Við höldum ferðinni áfram fram á síðustu mínútu, þar til Ísrael lokar á fjarskipti og internet skútunnar,“ sagði Rima Hassan, þingmaður Evrópuþingsins, við AFP-fréttaveituna.
Skútan ber heitið Madleen og lagði af stað frá Sikiley í síðustu viku með hjálpargögn.
„Við erum tólf almennir borgarar um borð. Við erum ekki vopnuð. Það eru einungis hjálpargögn um borð,“ sagði Hassan.
„Ég hef skipað hernum að koma í veg fyrir að Madleen–skútan nái að Gasa,“ sagði Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, í yfirlýsingu fyrr í dag.
Farþegar skútunnar svöruðu með yfirlýsingu og sögðust búast við árás hersins á hverri stundu. Þá kölluðu þau eftir því að ríkisstjórnir heimalanda þeirra vernduðu þau.
Ríkisborgarar Þýskalands, Frakklands, Brasilíu, Tyrklands, Svíþjóðar og Hollands eru um borð.
„Við erum ekki hrædd við þá,“ sagði þýski aðgerðarsinninn Yasemin Acar.
„Skilaboðin sem þau hafa sent okkur, um að við megum ekki koma nærri, stöðva okkur ekki,“ sagði hún.