Jaguar Land Rover stöðvar sendingar til Bandaríkjanna

Breski bílaframleiðandinn Jaguar Land Rover ætlar að „gera hlé“ á …
Breski bílaframleiðandinn Jaguar Land Rover ætlar að „gera hlé“ á bílasendingum til Bandaríkjanna AFP

Breski bílaframleiðandinn Jaguar Land Rover ætlar að „gera hlé“ á bílasendingum til Bandaríkjanna í apríl vegna tollahækkana Bandaríkjastjórnar. 

10 pró­senta lág­mark­s­toll­ar á flestall­ar inn­flutt­ar vör­ur til Banda­ríkj­anna tóku gildi á miðnætti.

„Bandaríkin eru mikilvægur markaður fyrir vörumerki JLR. Á meðan við vinnum að nýjum samkomulögum við viðskiptavini okkar munum við gera stutt hlé á sendingum í apríl, á meðan við þróum langtímaáætlanir,“ sagði í yfirlýsingu framleiðandans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert