50 milljarða króna máli Baldonis vísað frá

Leikararnir Justin Baldoni og Blake Lively.
Leikararnir Justin Baldoni og Blake Lively. Samsett mynd/AFP

Dómari í New York-ríki í Bandaríkjunum hefur vísað frá 400 milljón dala (um 55 milljarða króna) meiðyrðamáli sem leikarinn Justin Baldoni höfðaði gegn fyrrverandi meðleikkonu sinni, Blake Lively. BBC greinir frá.

Lively og Baldoni léku saman í kvikmyndinni „It Ends With Us“ sem kom út árið 2024 en þau hafa undanfarna mánuði átt í harðri lagadeilu og réttarhöld eru áætluð á næsta ári.

Lewis Liman dómari vísaði málinu frá á mánudag þar sem Baldoni krafðist bóta fyrir meinta fjárkúgun, meiðyrði og fleiri ásakanir.

Upphaf málsins má rekja til kæru sem Lively lagði fram árið 2024, þar sem hún sakaði Baldoni um kynferðislega áreitni og að hafa hafið áróðursherferð gegn sér. Hún lagði einnig fram mál gegn framleiðslufyrirtæki Baldonis, Wayfarer Studios, í desember sama ár og sakaði hann m.a. um áreitni á tökustað.

Í yfirlýsingu sem lögmenn Lively birtu bandarískum fjölmiðlum lýstu þeir úrskurðinum sem „algjörum sigri og fullkominni réttlætingu“ fyrir Lively og aðra sem höfðu verið dregnir inn í málið, þar á meðal Ryan Reynolds, Leslie Sloane og New York Times.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarfnast mikilla samskipta í sambandi þínu núna. Breyttu vinnulaginu svo þú náir sem mestum árangri á þeim tíma sem þú ætlar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lucinda Riley
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Arnaldur Indriðason
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarfnast mikilla samskipta í sambandi þínu núna. Breyttu vinnulaginu svo þú náir sem mestum árangri á þeim tíma sem þú ætlar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lucinda Riley
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Arnaldur Indriðason