54 ára og beraði bossann á tískupallinum

Bethenny Frankel geislaði á tískupallinum.
Bethenny Frankel geislaði á tískupallinum. AFP/Ivan Apfel

Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Bethenny Frankel, sem er hvað þekktust fyrir þátttöku sína í The Real Housewives of New York City, gekk tískupallana á Sports Illustrated-tískuvikunni í Miami nú á dögunum.

Frankel, sem er 54 ára gömul og í hörkuformi, skartaði glæsilegum sundfötum, meðal annars bleiku bikiníi, sundbol með hlébarðamynstri og bikiníi í kúrekastíl.

Raunveruleikastjarnan var full sjálfstrausts er hún dansaði niður tískupallana í nýjustu sundfatatískunni og endaði á að bera bossann í agnarsmáum g-streng við mikinn fögnuð viðstaddra.

Algjör drottning!
Algjör drottning! AFP/Ivan Apfel

Frankel hefur deilt þó nokkrum myndum og myndskeiðum frá tískuvikunni á Instagram-síðu sinni og virðast aðdáendur hennar agndofa yfir fersku og glóandi útliti hennar.

„Hún lítur ótrúlega vel út. Vá,“ skrifaði einn fylgjandi Frankel.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Núna er kjörið að greiða úr flækjum varðandi sameiginlegt eignarhald. Sýndu umburðarlyndi og þolinmæði og minntu þig á að oft vægir sá sem vitið hefur meira.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lucinda Riley
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Danielle Steel
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Núna er kjörið að greiða úr flækjum varðandi sameiginlegt eignarhald. Sýndu umburðarlyndi og þolinmæði og minntu þig á að oft vægir sá sem vitið hefur meira.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Lucinda Riley
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Danielle Steel