Sýna einn öflugasta sportbíl Mercedes-AMG

Það er ekki á hverjum degi sem að sportbílar af …
Það er ekki á hverjum degi sem að sportbílar af þessu tagi eru sýndir á Íslandi. Ljósmynd/Mercedes-Benz

Askja heldur AMG-viðburð á laugardag og lofar „sportlegri stemningu og alvöru afköstum“ eins og það er orðað í tilkynningu.

Þar verður í aðalhlutverki tveggja dyra Mercedes-AMG GT 63 E Performance, sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi og einn öflugasti sportbíllinn sem Mercedes-Benz hefur smíðað.

Kraftinn fær bifreiðin frá V8-vél og háþróuðu tengiltvinnkerfi sem þróað var í anda Formúlu 1. Þetta skilar 816 hestöflum og hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst á aðeins 2,8 sekúndum.

Auk GT 63 sýnir Askja fleiri sérvalda AMG-bíla, þar á meðal: Mercedes-AMG GLE 53, Mercedes-AMG CLE 53, Mercedes-AMG G 63, Mercedes-AMG EQE 43 SUV og Mercedes-AMG EQE 53.

Ágúst Hallvarðsson, sölustjóri Mercedes-Benz á Íslandi, segir Öskju hafa tekið eftir auknum áhuga á AMG-vörumerkinu, sérstaklega þeim AMG-bifreiðum sem koma í tengiltvinn-útfærslu, og stefnir í metár í afhendingum á AMG-bílum.

Viðburðurinn á laugardag er opinn almenningi og stendur yfir frá kl. 12-16.

Það er eins gott að sætin haldi þétt um ökumann …
Það er eins gott að sætin haldi þétt um ökumann og farþega í 816 hestafla bifreið. Ljósmynd/Mercedes-Benz
mbl.is