Nýr Skoda Enyaq kynntur á sumarsýningu Heklu

Enyaq kom fyrst á markað árið 2020 og hefur vakið …
Enyaq kom fyrst á markað árið 2020 og hefur vakið töluverða lukku. Ljósmynd/Hekla

Það verður líf og fjör á Laugavegi 174 á laugardag en þá heldur Hekla sumarsýningu og kynnir nýjan Škoda Enyaq.

Enyaq hefur fengið nýtt útlit og er enn betur búinn en áður. Í tilkynningu frá bílaumboðinu er tekið fram að Enyaq komi með fjórhjóladrifi og allt að 539 km drægni á rafmagni (skv. WLTP).

Aðeins 28 mínútur tekur að fylla rafhlöðuna upp að 80% ef notuð er 175 kW hraðhleðsla.

Farangursrýmið er 585 lítrar að rúmmáli og býður Enyaq m.a. upp á lyklalaust aðgengi og forhitun í gegnum snjallforrit. Rúsínan í pylsuendanum er rafknúið ökumannssæti með nuddi.

Enyaq kostar frá 7.690.000 kr. þegar styrkur úr Orkusjóði hefur verið dreginn frá og fylgir honum 5 ára eða 100.000 km ábyrgð.

Viðburðurinn á laugardag stendur yfir frá 12 til 16 og verður þar boðið upp á grillaðar pylsur og ís auk þess að Blaðrarinn mætir á svæðið. Thule verður einnig á staðnum og kynnir ferðavörur, og tilboðsverð verður á Audi Q6 og Volkswagen ID.4 GTX.

Skoda hefur bætt aukabúnaði við Enyaq og fylgir bílnum 5 …
Skoda hefur bætt aukabúnaði við Enyaq og fylgir bílnum 5 ára eða 100.000 km ábyrgð. Ljósmynd/Hekla
mbl.is