Útgerðarfélagið Sleppa ehf., sem Sigurjón Þórðarson formaður atvinnuveganefndar fer fyrir, hefur ekki nýtt 682 kg grásleppukvóta sem strandveiðibátur félagsins, Sigurlaug ÓF 38, fékk úthlutað í ár.
Fyrirséð er því að kvótinn verði ekki nýttur í ár þar, sem grásleppuvertíð er lokið. Afleiðingar þess eru að óbreyttu að kvóti skipsins fellur niður samkvæmt lögum.
Meirihluti atvinnuveganefndar, sem Sigurjón gegnir formennsku fyrir, lagði aftur á móti óvænt fram frumvarp í mars sem felur í sér að kvótasetning grásleppu verði afnumin og grásleppuveiðar háðar sérstöku leyfi Fiskistofu á ný.
Verði frumvarp meirihluta atvinnuveganefndar að lögum mun útgerðin eiga möguleika á að fá leyfi til grásleppuveiða þrátt fyrir að hafa ekki sinnt veiðiskyldu sinni í ár.
„Grásleppuveiðar skulu háðar sérstöku leyfi Fiskistofu og eiga þeir bátar einir kost á slíku leyfi sem rétt áttu til leyfis á grásleppuvertíðinni 1997 samkvæmt reglum þar um,“ segir í frumvarpinu.
Grásleppan var kvótasett með lögum sem tóku gildi í september á síðasta ári. Í greinargerð með frumvarpi því sem breytingarfrumvarpið byggði á segir að stjórn grásleppuveiða hafi á undanförnum árum sætt gagnrýni fyrir að vera ómarkviss og ófyrirsjáanleg fyrir þá sem stundi veiðarnar. Megintilgangurinn með breytingunni var að auka fyrirsjáanleika við veiðarnar og tryggja betur sjálfbærar og markvissar veiðar.
Í frumvarpi meirihluta atvinnuveganefndar kemur fram að lögin hafi verið umdeild og gagnrýnd fyrir að fela í sér ónauðsynlega skömmtun á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.
Sigurjón seldi hlut sinn í útgerðinni Sleppu fyrir skemmstu en eiginkona hans, Svava Ingimarsdóttir, fer áfram með 49% hlut í útgerðinni. Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir fer nú með 51% hlut í félaginu, 50% keypti hún af Sigurjóni og 1% af Svövu. Eins og Morgunblaðið sagði frá fer Sigurjón áfram með formennsku í félaginu og er prókúruhafi þess. Nýr meirihlutaeigandi er hvorki í stjórn né framkvæmdastjórn og ekki með prókúru.
Morgunblaðið hefur farið þess á leit við bæði Sigurjón og nýjan meirihlutaeiganda að fá afrit af kaupsamningi, án árangurs. Þau hafa heldur ekki svarað því hvort greiðsla hafi verið innt af hendi eða fari fram síðar, og ekki heldur hvort kunningsskapur hafi verið þeirra á milli fyrir viðskiptin.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 11.6.25 | 520,83 kr/kg |
Þorskur, slægður | 11.6.25 | 545,52 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 11.6.25 | 553,13 kr/kg |
Ýsa, slægð | 11.6.25 | 480,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 11.6.25 | 174,06 kr/kg |
Ufsi, slægður | 11.6.25 | 244,72 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.5.25 | 99,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 10.6.25 | 14,00 kr/kg |
Gullkarfi | 11.6.25 | 121,59 kr/kg |
Litli karfi | 11.6.25 | 9,35 kr/kg |
11.6.25 Ingi Putti EA 18 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 796 kg |
Samtals | 796 kg |
11.6.25 Draumey SU 7 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 588 kg |
Samtals | 588 kg |
11.6.25 Helgi SH 210 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 402 kg |
Samtals | 402 kg |
11.6.25 Byr AK 120 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 925 kg |
Ufsi | 56 kg |
Samtals | 981 kg |
11.6.25 Sæbjörg EA 184 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 973 kg |
Ufsi | 412 kg |
Samtals | 1.385 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 11.6.25 | 520,83 kr/kg |
Þorskur, slægður | 11.6.25 | 545,52 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 11.6.25 | 553,13 kr/kg |
Ýsa, slægð | 11.6.25 | 480,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 11.6.25 | 174,06 kr/kg |
Ufsi, slægður | 11.6.25 | 244,72 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.5.25 | 99,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 10.6.25 | 14,00 kr/kg |
Gullkarfi | 11.6.25 | 121,59 kr/kg |
Litli karfi | 11.6.25 | 9,35 kr/kg |
11.6.25 Ingi Putti EA 18 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 796 kg |
Samtals | 796 kg |
11.6.25 Draumey SU 7 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 588 kg |
Samtals | 588 kg |
11.6.25 Helgi SH 210 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 402 kg |
Samtals | 402 kg |
11.6.25 Byr AK 120 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 925 kg |
Ufsi | 56 kg |
Samtals | 981 kg |
11.6.25 Sæbjörg EA 184 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 973 kg |
Ufsi | 412 kg |
Samtals | 1.385 kg |