Innviðafélag Íslands stofnað

Ljósmynd/Vegagerðin

Nýr sjóður, Innviðafélag Íslands slhf., hefur verið stofnaður af REC Sjóðum með það að markmiði að styrkja lánsfjármögnun innviðaverkefna á Íslandi. Sjóðurinn er fjármagnaður af lífeyrissjóðum og býður upp á langtímafjármögnun.

Fram kemur í tilkynningu að um sé að ræða samstarfsvettvang sem miðar að því að auðvelda fjármögnun stórra innviðaverkefna, og geta lífeyrissjóðir tekið þátt í meðfjárfestingum samkvæmt áskriftarfyrirkomulagi. Gert er ráð fyrir að lágmarksfjárfestingargeta vettvangsins, með tilliti til slíkra samninga, nemi að minnsta kosti 23 milljörðum króna.

Sigurður Kristinn Egilsson, framkvæmdastjóri félagsins, segir þetta mikilvægt skref til að hraða uppbyggingu innviða hér á landi.

„Af nægu er að taka á þeim vettvangi,“ segir hann. „Sérstaða sjóðsins felst m.a. í því að hann getur fjármagnað verkefni frá fyrstu skrefum framkvæmda og tryggt langtímafjármögnun.“

Í tilkynningunni er vísað til nýlegrar skýrslu Samtaka iðnaðarins þar sem áætlað er að viðhaldsþörf innviða nemi yfir 680 milljörðum króna, og þar að auki sé þörf fyrir umfangsmiklar nýfjárfestingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK