Breytingar á stjórnendateymi N1

Ragnhildur Leósdóttir, Svavar Kári Grétarsson og Hreinn Þorvaldsson.
Ragnhildur Leósdóttir, Svavar Kári Grétarsson og Hreinn Þorvaldsson. Ljósmynd/Aðsend

N1 hefur ráðið þrjá nýja stjórnendur í lykilhlutverk innan fyrirtækisins. Það eru þau Ragnhildur Leósdóttir, Hreinn Þorvaldsson og Svavar Kári Grétarsson sem bætast í hópinn, en Ragnhildur og Hreinn koma til starfa á orkusviði N1, á meðan Svavar tekur við stöðu deildarstjóra á dagvörusviði félagsins.

Ragnhildur Leósdóttir hefur tekið við starfi sölu- og þjónustustjóra orkusviðs N1. Hún kemur frá Símanum þar sem hún gegndi stöðu deildarstjóra söluráðgjafar og var áður vörustjóri Sjónvarps Símans. 

Hreinn Þorvaldsson er nýr rekstrarstjóri orkusviðs. Hann kemur frá Festi, en starfaði áður á fjármálasviði N1 og hefur því reynslu frá báðum félögum. 

Svavar Kári Grétarsson tekur við sem deildarstjóri dagvörusviðs. Hann starfaði áður hjá Ölgerðinni sem vörumerkjastjóri Collab innanlands og síðar í útflutningsdeild með áherslu á alþjóðlega markaðssókn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK