Sprotafyrirtækið Abler, sem þróar hugbúnað sem einfaldar og eflir íþrótta- og tómstundastarf, er farið að þjónusta aðila erlendis á borð við Newcastle, Sunderland og Chelsea.
70% íslensku þjóðarinnar eru notendur Abler sem tengir saman iðkendur, foreldra, þjálfara og skipuleggjendur í íþrótta- og tómstundastarfi, félagsmannaklúbbum, líkamsrækt, ferðaþjónustu og fleiru.
„Í grunninn þurfa viðskiptavinir okkar að horfa í hverja krónu sem fer í rekstur þeirra, það er dýrt að halda úti jafn umfangsmiklu íþróttastarfi og hér er gert og því fylgir ekki alltaf nægileg fjármögnun,“ segir Markús Máni M. Maute, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Abler, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. „Til þess að geta boðið íþróttafélögum góða þjónustu og góðan hugbúnað, því það kostar að framleiða góðan hugbúnað, þá þurfum við að ná massanum inn. Þá þurfum við að vaxa út fyrir landsteinana. Þannig að þetta er líka hluti af sjálfbærni okkar og svo höfum við bara gríðarlegan metnað fyrir því að ná árangri erlendis.“
Nú herjar Abler á markaðinn í Bretlandi. „Við höfum náð þeim árangri að fá að þjónusta nokkur flottustu félög í heimi sem hafa valið okkur til þess að hjálpa sér að halda utan um íþróttastarfið, alveg eins og við höfum verið að gera á Íslandi. Við erum að þjónusta Newcastle, Chelsea og Sunderland og fleiri úrvalsdeildarfélög. Þau eru af allt annarri stærðargráðu en við þekkjum hér á Íslandi, eins og Newcastle sem er með um sextíu þúsund iðkendur og Sunderland tuttugu og fimm þúsund,“ segir Markús.
Hann segir kerfi Abler henta vel stórum félögum. Fyrirtækið þjónusti þó lítil félög í Bretlandi líka. Um nokkurt skeið hafi Abler þjónustað viðskiptavini í Þýskalandi. Þar sé starfsemin líkari því sem þekkist á Íslandi.
Abler ætli ekki að vanrækja Ísland þó það sé farið að þjónusta stærri aðila. „Við lítum á Ísland sem heimamarkað okkar og okkur rennur blóðið til skyldunnar alveg einlægt að halda áfram að sinna honum vel. Enda eru höfuðstöðvarnar á Íslandi og mjög margt af lykilstarfsfólki okkar alið upp í íslensku íþróttalífi,“ segir Markús. Ekki standi til að færa höfuðstöðvarnar.
Ísland er enn langstærsti markaður Abler að sögn Markúsar. „Við erum bara rétt að hefja innleiðinguna á þessum stóru félögum úti. Þannig að ég myndi segja að allavega níutíu prósent af umsvifum okkar séu enn á Íslandi.“
Síðustu ár hefur rekstur Abler komið út í tapi. Spurður hvort fyrirtækið ætli að skila hagnaði í ár segir Markús einfaldlega nei, fyrirtækið sé enn að fjárfesta til framtíðar. Abler sé vel fjármagnað. „Við fengum góða fjárfesta inn í fyrirtækið fyrir um tveimur árum. Svo höfum við verið úrræðagóð í að nýta fjármagnið vel.“
„Það er bara margsannað að íþróttastarf á Íslandi sé það besta í heiminum og margir, bæði þeir sem stjórna íþróttafélögum og alls konar samtökum, koma til Íslands til þess að læra hvernig þetta er gert hérna. Því við erum að ná fáránlega góðum árangri í íþróttum miðað við hvað þjóðin er lítil,“ segir Markús.
„En það sem er svo fallegt við íþróttastarf hérna á Íslandi er að að sama skapi er það aðgengilegt öllum. Það getur hver sem er farið að æfa og það skilar svo jákvæðum samfélagslegum áhrifum. Þessi blanda er rosalega eftirsóknarverð fyrir önnur samfélög, sem vilja ná þessu íslenska módeli. Við teljum okkur geta stutt rosalega vel við það með því að þjónusta íþróttafélögin. Við teljum okkur vera með frábæran hugbúnað og hugmyndafræði sem getur haft jákvæð samfélagsleg áhrif víðs vegar um heiminn,“ segir Markús.
Abler telji sig eiga fullt erindi til að ná góðum árangri erlendis: „Af því að við erum búin að þjónusta svo gott íþróttastarf hérna á Íslandi. Það er þess vegna sem við erum að ná inn þessum leiðandi aðilum erlendis og að þeir treysti fyrirtæki á Íslandi fyrir sínum hugbúnaði. Newcastle er ríkasta íþróttafélag í heimi og þeir gætu þróað sína eigin lausn ef þeir vildu það. En þeir treysta okkur fyrir þessu.“