Tilþrif og barátta í fyrstu umferð Íslandsmótsins

Vígaleg ráslínan á sunnudag er tíu keppendur tóku þátt.
Vígaleg ráslínan á sunnudag er tíu keppendur tóku þátt. Ljósmynd/Ingvar Samúelsson

Fyrsta umferð Íslandsmótsins í kappakstri mótorhjóla var haldin er tvær lotur voru keyrðar á kappakstursbraut Kvartmíluklúbbsins á sunnudag.

Tíu keppendur tóku þátt og voru efstu keppendur að ná góðum tímum strax í tímatökunum þar sem bæði Stefán Orlandi og Jóhann Leví Jóhannsson náðu að keyra undir 1 mín 24 og skila sér í tvö efstu sæti tímatökunnar.

Jóhann Leví og Stefán áfram í sérflokki

Baráttan um efsta sætið var hörð í fyrri lotunni en núverandi Íslandsmeistari, Stefán Orlandi, leiddi keppnina í harðri baráttu við Jóhann Leví. Gylfi Þór Héðinsson, Árni Þór Jónasson og Ingólfur Snorrason börðust um þriðja sætið, en náðu ekki að ógna Stefáni og Jóhanni Leví.

Að lokum var það Stefán sem skilaði sér fyrstur í mark, tryggði sér þannig fyrstu 25 stig dagsins og var hraðasti hringur hans 1:22,569, sem var jafnframt hraðasti hringur dagsins. Jóhann Leví Jóhannsson varð annar og Árni Þór Jónsson þriðji.

Seinni lotan í járnum

Baráttan hélt áfram í seinni lotunni er Stefán og Jóhann börðust um fyrsta sætið strax frá upphafi. Gylfi og Ingólfur náður báðir framúr Árna í startinu og fylgdu baráttunni eftir um þriðja sætið en komust aldrei nærri þeim Jóhanni Leví og Stefáni.

Þannig voru það Stefán og Jóhann Leví sem börðust hart um fyrsta sætið, skiptust á forystunni og buðu upp á einu flottustu baráttu á brautinni til þessa.

Verðlaunahafarnir Stefán Orlandi í öðru sæti, Jóhann Leví Jóhannsson í …
Verðlaunahafarnir Stefán Orlandi í öðru sæti, Jóhann Leví Jóhannsson í fyrsta sæti og Ingólfur Snorrason í þriðja sæti. Ljósmynd/Ingvar Samúelsson

Að lokum var það Jóhann Leví sem skilaði sér fyrstur í mark og innsiglaði þannig sigur í lotunni og jafnframt fyrstu umferð Íslandsmótsins. Stefán varð síðan annar og Ingólfur þriðji.

Lokaúrslit dagsins voru eftirfarandi:

1. sæti: Jóhann Leví Jóhannsson á Suzuki, 45 stig

2. sæti: Stefán Orlandi á Honda, 45 stig

3. sæti: Ingólfur Snorrason á Yamaha, 29 stig

4. sæti: Árni Þór Jónasson á Ducati, 29 stig

5. sæti: Jóhann Sigurjónsson á Ducati, 22 stig

6. sæti: Njörður Þórsson á Yamaha, 19 stig

7. sæti: Gylfi Þór Héðinsson á Yamaha, 19 stig

8. sæti: Ugnius Aleksandravicius á Honda, 8 stig

9. sæti: Paulus Aleksandravicius á Honda, 7 stig

10. sæti: Vaidas Daunoras á Honda, 6 stig

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert