Sú markahæsta ekki á EM

Jenni Hermoso í leik með Spáni.
Jenni Hermoso í leik með Spáni. AFP/Steve Christo

Jenni Hermoso, markahæsti leikmaður spænska kvennalandsliðsins í knattspyrnu í sögunni, er ekki í 23-manna lokahópi heimsmeistara Spánar fyrir EM 2025 í Sviss.

Hermoso er 35 ára sóknarmaður sem hefur skorað 57 mörk í 123 A-landsleikjum en lék síðast landsleik í október á síðasta ári.

Hún vakti heimsathygli þegar Luis Rubiales, þáverandi forseti spænska knattspyrnusambandsins, kyssti hana án samþykkis eftir að Spánn tryggði sér heimsmeistaratitilinn í Sydney í Ástralíu á HM 2023.

Rubiales var síðar dæmdur fyrir kynferðisbrot vegna kossins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert