Þýski knattspyrnumaðurinn Leroy Sané er að ganga til liðs við tyrkneska úrvalsdeildarfélagið Galatasaray.
Bæði Sky í Þýskalandi og ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greina frá þessu en samningur Sané, sem er 29, við Bayern München rennur út um næstu mánaðarmót.
Hann hefur átt í viðræðum við forráðamenn þýska félagsins undanfarnar vikur um nýjan samning en nú er ljóst að hann mun yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út.
Sané er uppalinn hjá Schalke en gekk ungur að árum til liðs við Manchester City þar sem hann lék í fjögur tímabil áður en Bæjarar keyptu hann fyrir 40 milljónir punda.
Hann var einnig orðaður við félög á Englandi, sem og í Sádi-Arabíu, en ákvað að fara til Tyrklands.