„Lið eru að þjást“

Luis Enrique á hliðarlínunni í gær.
Luis Enrique á hliðarlínunni í gær. AFP/HARRY HOW

Luis Enrique, stjóri París SG, er ekki sáttur með leiktíma liðsins á heimsmeistaramóti félagsliða vegna mikils hita í Bandaríkjunum.

París SG vann sannfærandi 4:0-sigur gegn Atlético Madrid í gærkvöld í miklum hita í Los Angeles.

Til þess að Evrópubúar gætu fylgst með leiknum hófst hann klukkan 12.00 í Los Angeles en í sólinni náði hitinn næstum því 40 gráðum.

„Hitinn hafði klárlega áhrif á leikinn. Tímasetningin hentar evrópskum áhorfendum vel en liðin eru að þjást. Það er ómögulegt að spila á háu stigi í 90 mínútur,“ sagði Enrique í viðtali eftir leik.

París SG mætir Botafogo í næsta leik en leikurinn fer fram klukkan 18.00 að bandarískum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert