ÍBV tók á móti Valsmönnum í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu á Þórsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld. Eftir spennuþrunginn hálftíma undir lokin endaði leikurinn með 1:0-sigri gestanna frá Reykjavík.
Sigurður Arnar Magnússon var að vonum pirraður svona stuttu eftir leikslok, en Eyjamenn voru langt frá því að vera sáttir með störf dómarans í dag.
„Við erum hundfúlir. Þetta var ekki sanngjarnt. Maður ætti kannski að reyna að spara stóru orðin,“ sagði Sigurður Arnar eftir leik.
Eins og fram hefur komið í kvöld skoraði Hólmar Örn Eyjólfsson eftir hornspyrnu þegar rétt rúmlega korter var liðið af leiknum í kvöld. Eyjamenn voru í raun aldrei nálægt því að svara marki Valsmanna fyrr en í seinni hálfleik þegar Valsmenn áttu í fullu fangi við að verjast beinskeittum sóknum heimamanna. Sigurður var ekki ánægður með varnarleik sinna manna í marki Valsmanna.
„Við vörðumst þessu horni illa og áttum skilið að fá á okkur mark þar. Fyrri hálfleikurinn var bara ekki nægilega góður hjá okkur.“
„En svo komum við út í seinni hálfleik og það er bara eitt lið sem fær færi og gerir eitthvað af viti í seinni hálfleik. En við náum ekki að skora og það eru margar ástæður fyrir því,“ sagði Sigurður Arnar þróun leiksins.
Eyjamönnum fannst halla verulega á sig í dómgæslunni almennt. Enn fremur telja þeir sig hafa átt að fá tvær vítaspyrnur í síðari hálfleik. Annarsvegar þegar varnarmaður Vals stoppaði skot á mark með hendinni og hinsvegar þegar varnarmaður Vals fékk fyrirgjöf Eyjamanna í handlegginn.
„Við erum mjög ósáttir með mjög margt. Ef allt er eðlilegt þarna inná erum við að fara áfram í bikarnum, ekki þeir. En það var bara margt í ólagi og margt skrítið í gangi.“
„Þegar leikmaður ver skot með hendinni og hlær að því að vera ekki að fá dæmt á sig víti, meðan hann segir það sjálfur að hann hafi bara varið skotið, hvað á maður þá að segja?“
„Auðvitað er maður bara svekktur og pirraður. Það var bara einn sem var ekki starfi sínu vaxinn í dag. En það er ekki bara það. Auðvitað áttum við að verjast þessu horni betur og fyrri hálfleikurinn var ekki góður hjá okkur. En auðvitað finnst manni svolítið svindlað á sér þegar þetta er staðan,“ sagði Sigurður Arnar að lokum.