„Þeir nýttu færin betur,“ sagði Aron Sigurðarson fyrirliði KR í samtali við mbl.is eftir tap liðsins gegn Víkingi í Reykjavíkurslag í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Urðu lokatölur í skemmtilegum leik 3:2.
„Þeir skora úr horni og við vorum klaufar í vörninni. Svo vorum við ekki nógu skarpir þegar við komumst á síðasta þriðjung. Við vorum stundum að flýta okkur of mikið,“ sagði hann.
Fyrri hálfleikurinn var sérstaklega skemmtilegur og var staðan eftir hann 2:2. Seinni hálfleikurinn var rólegri og bauð aðeins upp á eitt mark.
„Bæði lið komu í leikinn af krafti og sóttu. Víkingur er með frábært lið og frábæra einstaklinga fram á við. Við spilum að sama skapi skemmtilegan sóknarbolta og það var öruggt að það yrðu mörk í kvöld. Þeir eru komnir aðeins lengra á sinni vegferð.“
KR-ingar vildu fá rautt spjald á Karl Friðleif Gunnarsson er hann handlék boltann innan teigs þegar allt benti til þess að Gabríel Hrannar Eyjólfsson væri að fara að skora. Aron vildi ekki gera mikið úr atvikinu.
„Nei, nei. Dómarinn útskýrir að markvörðurinn hafi verið fyrir aftan varnarmanninn þótt mér hafi ekki fundist það. Hann hefði aldrei varið ef boltinn hefði farið á markið en dómarinn útskýrði þetta og gaf gult.“
KR er í níunda sæti með 13 stig, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti og á sama tíma aðeins sex stigum á eftir Vestra í þriðja sæti.
„Það er ekki hægt að horfa á töfluna akkúrat núna. Við einbeitum okkur á frammistöðuna og við viljum spila okkar leik. Við vorum á einum erfiðasta útivelli landsins í kvöld og við þorðum allan leikinn. Við einbeitum okkur að því,“ sagði Aron.