Damir aftur til Breiðabliks

Damir Muminovic í leik með Breiðabliki.
Damir Muminovic í leik með Breiðabliki. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Knattspyrnumaðurinn Damir Muminovic hefur samið við Breiðablik um að leika með liðinu út tímabilið. Kemur hann frá DPMM í Brúnei, sem leikur í efstu deildinni í Singapúr.

Ekki hefur verið tilkynnt formlega um skiptin en búið er að skrá samning Damirs við Breiðablik á heimasíðu KSÍ. Þar kemur fram að samningurinn taki gildi 1. júlí næstkomandi og renni út í lok árs.

Damir, sem er 35 ára varnarmaður og sex landsleiki að baki fyrir Íslands hönd, varð Íslandsmeistari með Breiðabliki á síðasta tímabili og hélt svo í byrjun ársins á vit ævintýranna í Asíu.

Hann er næstleikjahæsti leikmaður félagsins í efstu deild með 229 leiki og á samtals að baki 267 leiki í deildinni. Damir lék sinn 350. deildaleik á  ferlinum á meðan hann spilaði með DPMM.

Félagaskiptaglugginn hér á landi opnar ekki fyrr en um miðjan júlí og má vænta þess að hann fái þá formlega leikheimild og geti byrjað að spila með Blikum á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert