Á Vesturlandi er að finna aragrúa af einstaklega fallegum, notalegum og vel búnum gististöðum og ættu því allir sem ætla sér að ferðast vestur á land og njóta sólbjartra og langra sumardaga fjarri skarkala höfuðborgarinnar að finna eitthvað við sitt hæfi. Í tilefni þess að íslenska ferðasumarið er að ganga í garð tók Morgunblaðið saman nokkra skemmtilega og ólíka gististaði víðs vegar á Vesturlandi sem eru til leigu á vefsíðunni Airbnb, bara svona til að auðvelda ferðaþyrstu fólki leitina. Meira
Unnur Lárusdóttir er 27 ára framakona og meistaranemi sem hefur komið sér vel fyrir með litlu fjölskyldunni sinni í kjarna Reykjavíkur. Hún reynir að halda góðu jafnvægi á vinnu- og fjölskyldulífinu og veitt fátt betra en að kúpla sig út og keyra út úr bænum. Leiðin liggur þá yfirleitt vestur á land, en hún á ættir að rekja til Stykkishólms. Hún hefur einnig í gegnum tíðina verið dugleg að skoða sig um og hefur varið miklum tíma í útilegum og bíltúrum með vinum og fjölskyldu, bæði á Snæfellsnesinu og á Vestfjörðum. Meira
Kaffihúsið Fjöruhúsið hefur verið rekið á Hellnum í tæplega 30 ár. Það laðar að forvitna ferðamenn og sælkera sem vilja fá sér eitthvað gott. Meira
Snæfellsnesið hefur mikið aðdráttarafl að mati Arnórs Hreiðarssonar sem á rætur að rekja til staðarins bæði frá móður- og föðurætt. Árið 2018 flutti hann til Stykkishólms ásamt fjölskyldunni og tók við rekstri ömmu sinnar í nokkurn tíma. Meira
Margrét Rósa Einarsdóttir er mikil áhugakona og hálfgerður sérfræðingur í leikföngum, þá sérstaklega gömlum leikföngum, sem fólk, 40 ára og eldra, man vel eftir að hafa leikið sér með í æsku, og ákvað að samtvinna þetta skemmtilega áhugamál sitt í starfi. Fyrir rétt rúmum fimm árum opnaði hún eitt skemmtilegasta og litríkasta safn landsins, Leikfangasafn Soffíu, í Borgarnesi, þar sem sjá má bæði gull og gersemar í hverju horni. Meira
Esther Ösp Valdimarsdóttir vissi ekki við hverju hún ætti að búast þegar hún flutti með manni sínum, Eiríki Valdimarssyni þjóðfræðingi, og börnum til Vestfjarða, nánar tiltekið Hólmavíkur, fyrir röskum áratug. Meira
Útgefandi Árvakur Umsjón Svanhvít Ljósbjörg Gígja Blaðamenn Elínrós Líndal elinros@mbl.is, Svanhvít Ljósbjörg Gígja svanhvit@mbl.is, Auglýsingar auglysingar@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Meira
Það geta allir fundið sinn takt í hlaupum og mikilvægt er að rífa sig ekki niður því að hugarfarið skiptir öllu máli. Sabrína Lind Adolfsdóttir þekkir það á eigin skinni og aðstoðar núna konur að læra að hlaupa fyrir sjálfar sig. Meira
Katrín Lilja Sigurðardóttir er algjör orkubolti sem er ýmist í fjallahlaupum, hjólreiðum eða crossfit. Hún hafði aldrei unnið til verðlauna í lífinu þar til hún fór að hlaupa. Meira
Hluti af því að lifa lífinu er að reyna á þolmörkin, að mati Sigurjóns Ernis Sturlusonar, en í ágúst verður haldið Rauðavatn Ultra þar sem meðal annars er hægt að keppa í 100 kílómetra hlaupi. Meira
María Ólafsdóttir er með brennandi áhuga á hlaupum, sem hún hefur nú stundað í eitt ár. Meira
Elísabet Margeirsdóttir mælir með því að æfa í Náttúruhlaupum þar sem fallegt samfélag ríkir og fólk kynnist öðrum hlaupurum með heilbrigðan lífsstíl og áhugaverð lífsviðhorf. Meira