Play hyggst færa hluta starfsemi sinnar til Möltu og Litáen en þrátt fyrir breytingarnar mun meginþungi rekstrar og stjórnunar áfram liggja á Íslandi. Þetta segir Einar Örn Ólafsson forstjóri félagsins í samtali við ViðskiptaMoggann.
Á Möltu verður aðsetur þeirra starfa sem lúta að flugrekstrarleyfinu. Greint var frá því í síðustu viku að Play hafi í hyggju að skila inn íslenska flugrekstrarleyfinu og muni starfa eftir leyfi frá Möltu.
Á Möltu þurfa að vera starfandi flugrekstrarstjóri og annað lykilábyrgðarfólk til að uppfylla kröfur flugmálayfirvalda þar í landi. Um 15–20 starfsmenn verða staðsettir þar og einhverjir þeirra verða Íslendingar. „Við gerum ráð fyrir að lítill hluti starfsfólksins flytjist beint frá Íslandi,“ segir Einar.
Í Litáen hefur Play rekið stoðdeildir um nokkurt skeið. Þar hefur ýmis þjónusta og bakvinnsla verið en á síðustu 12 mánuðum hefur fjármálasviðið að mestu verið flutt þangað ásamt hluta tölvudeildar. „Við höfum fært mikið af bakvinnslu til Litáen og það hefur gengið vel,“ segir hann.
Á Íslandi mun áfram verða meginstarfsemi á sviðum eins og tekjustýringu, markaðsmálum, mannauðsmálum og almannatengslum. Einnig verður þjónusta við leigutaka og greiningar- og þróunardeildin áfram hér á landi. „Stærsti hluti æðstu stjórnenda félagsins er á Íslandi og yfirstjórn félagsins helst þar,“ segir Einar.
Spurður um hvar höfuðstöðvar félagsins verði staðsettar segir Einar að það fari eftir skilgreiningu. Ef miðað sé við hvar framkvæmdastjórnin starfar séu höfuðstöðvarnar á Íslandi. „Móðurfélagið er íslenskt, sölufélagið einnig, en flugreksturinn sjálfur er undir maltnesku leyfi og því þar,“ útskýrir hann.
Þrátt fyrir breytingarnar á skipulagi segir Einar áhrif á starfsmannahald vera tiltölulega lítil til skemmri tíma litið. „Við gerum ráð fyrir að fáeinir starfsmenn flytjist fljótlega til Möltu. Þetta er ekki breyting sem mun hafa afgerandi áhrif á heildarfjölda starfa strax.“
Þó bendir hann á að yfir lengri tíma megi búast við einhverri fækkun starfa, einkum vegna samdráttar í þróunarvinnu. „Við höfum fjárfest duglega í þróun, eins og bókunarvélina okkar, en það er ekki sjálfbært til lengri tíma. Nú erum við að draga saman seglin og færa okkur yfir í einfaldari rekstur,“ bætir hann við.
Einar Örn staðfestir jafnframt að viljayfirlýsing hafi verið undirrituð um samstarf við erlent flugfélag, þótt hún sé ekki bindandi eins og fram kom í fjárfestakynningunni sem birt var í síðustu viku. „Við hefðum ekki sett þetta í fjárfestakynninguna nema að þetta væri raunhæfur möguleiki.“
Verði yfirtökutilboðið í Play, sem tilkynnt var um í síðustu viku, ekki samþykkt af hluthöfum eru önnur úrræði til skoðunar. Einar nefnir útgáfu hlutafjár hjá áframhaldandi skráðu félagi og þá hafa erlendir aðilar sýnt áhuga á að koma inn í maltneska dótturfélagið. „Valkostirnir eru nokkrir og við erum bjartsýn á að yfirtakan nái fram að ganga.“
Spurður um hvort ætlunin sé að selja félagið í heild eða halda áfram rekstri segir Einar að báðar leiðir séu opnar. „Við nefnum möguleikann á útgöngu því fjárfestar vilja auðvitað sjá að þeir geti fengið peninga til baka. En við ætlum ekki að selja á næstu misserum, nú er markmiðið að bæta reksturinn og skapa verðmæti,“ segir Einar Örn að lokum.
Lesa má viðtalið í heild sinni í ViðskiptaMogganum.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.