Bestu tækifærin myndast þegar enginn þorir

Í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna var rætt um markaðinn, bankasamruna og fleira. Gestur þáttarins að þessu sinni var Helgi Frímannsson fjárfestingaráðgjafi hjá New Iceland Advisors.

Spurður í hvaða félögum eða geirum hann sjái helst kauptækifæri segir Helgi að það séu kauptækifæri í öllum félögum ef þau eru á réttu verði.

„Við erum með mörg flott félög á markaðnum sem að sjálfsögðu sveiflast í verði, það kemur upp óvissa öðru hvoru eins og þegar Trump tilkynnir tolla. Það má þó ekki gleyma því að bestu tækifærin koma þegar enginn þorir,“ segir Helgi.

Hann bætir við að oft þurfi þó mikið hugrekki til að synda á móti straumnum.

„Ef þú kaupir á dögum þegar enginn vill kaupa, þó það sé erfitt, þá þegar tíminn líður verða það kannski bestu kaupin þegar upp er staðið,“ segir Helgi.

Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér:

Helgi Frímannsson fjárfestingaráðgjafi var gestur í Dagmálum.
Helgi Frímannsson fjárfestingaráðgjafi var gestur í Dagmálum. mbl.is/Hallur Már
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK