Hrund Hauksdóttir nýr fjármálastjóri Íslandshótela

Hrund Hauksdóttir, fjármálastjóri Íslandshótela.
Hrund Hauksdóttir, fjármálastjóri Íslandshótela. Ljósmynd/Aðsend

Hrund Hauksdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Íslandshótela. Hún hóf störf á fjármálasviði félagsins í september 2023 og hefur setið í stjórn þess frá því í ár.

Hrund er löggiltur endurskoðandi með um 20 ára reynslu af fjármálum, endurskoðun og áhættustýringu. Hún starfaði hjá BDO frá 2018 til 2023 og áður hjá Deloitte, þar sem hún vann að endurskoðun og ráðgjöf fyrir fjármálafyrirtæki, sveitarfélög og fyrirtæki í sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Á árunum 2005–2013 starfaði hún hjá Landsbankanum, meðal annars sem forstöðumaður eigna- og skuldaáhættu, auk þess sem hún sinnti áhættustýringu frá útibúi bankans í London.

Haft er eftir Davíð Torfa Ólafssyni, forstjóra Íslandshótela í tilkynningu:

„Það er okkur mikil ánægja að fá Hrund til starfa sem fjármálastjóra Íslandshótela. Hún býr yfir dýrmætri reynslu af fjármálum, endurskoðun og áhættustýringu og hefur þegar sýnt mikla fagmennsku í störfum sínum innan fyrirtækisins. Með Hrund í þessu lykilhlutverki bætist við mikilvæg reynsla og þekking sem mun nýtast vel í áframhaldandi vexti Íslandshótela.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK