Tyrese Haliburton, helsta stjarna Indiana Pacers, ætlar sér að spila í sjötta leiknum gegn Oklahoma City Thunder í úrslitaeinvígi bandarísku NBA-deildarinnar í körfubolta í Indiana í nótt.
Staðan er 3:2 fyrir Oklahoma og með sigri í nótt verður liðið NBA-meistari. Takist Indiana að vinna leikinn verður oddaleikur í Oklahoma aðfaranótt mánudags.
Haliburton meiddist í leik fimm en spilaði hann nánast allan. Hann þurfti síðan að fara í segulómun í vikunni.
Þrátt fyrir meiðslin segist Shams Charania hjá ESPN búast við því að Haliburton verði með í kvöld.
„Hann ætlar sér að spila í nótt og mun gera það nema eitthvað versni,“ sagði Shams hjá ESPN.