Bandaríski kaupsýslumaðurinn Mark Walter hefur komist að samkomulagi við Buss-fjölskylduna um kaup á meirihluta í bandaríska körfuboltafélaginu Los Angeles Lakers fyrir tíu milljarða bandaríkjadala.
ESPN greinir frá og þar kemur fram að aldrei áður hafi eitt íþróttafélag verið keypt á svo háa upphæð.
Walter er framkvæmdastjóri og stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins TWG Global sem hefur ítök hvarvetna, þar á meðal í íþróttum, fjölmiðlum, skemmtanabransanum, viðskiptabönkum og tæknigeiranum.
Í umfjöllun ESPN kemur fram að Jeanie Buss muni halda áfram að sinna starfi sínu sem framkvæmdastjóri þrátt fyrir yfirtöku Walters.