Fer frá Keflavík til Álftaness

Sigurður Pétursson með boltann í leik Keflvíkinga.
Sigurður Pétursson með boltann í leik Keflvíkinga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Körfuknattleiksmaðurinn Sigurður Pétursson er genginn til liðs við Álftanes.

Þetta tilkynnti félagið í dag en Sigurður kemur til Álftaness frá Keflavík þar sem hann hafði spilað í tvö tímabil. 

Sigurður gekk í raðir Keflavíkur eftir að faðir hans Pétur Ingvarsson tók við liðinu en þeir urðu bikarmeistarar saman í fyrra. 

Sigurður var í yngri flokkum Hauka en skipti yfir í Breiðablik á táningsaldri og hóf meistaraflokksferil sinn þar. Hann á þá að baki þrjá landsleiki. 

Álftanes gerði vel á síðustu leiktíð en liðið komst í undanúrslit Íslandsmótsins í fyrsta sinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert