Ómar og Gísli fögnuðu í borginni

Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þoregir Kristjánsson, báðir hægra megin, …
Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þoregir Kristjánsson, báðir hægra megin, ásamt liðsfélögunum sínum. Ljósmynd/Magdeburg

Landsliðsmennirnir Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson fögnuðu með liði sínu Magdeburg í borginni í dag. 

Magdeburg varð Evrópumeistari á sunnudaginn var í annað sinn á þremur árum en Gísli Þorgeir var valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar í annað sinn.

Stuðningsmenn söfnuðust saman á torgi í borginni og fögnuðu innilega með leikmönnum og starfsfólki félagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert