Pamela hlutskörpust í höggleiknum

Pamela Ósk Hjaltadóttir.
Pamela Ósk Hjaltadóttir. Ljósmynd/seth@golf.is

Pamela Ósk Hjaltadóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar lék á pari í 36 holu höggleik á Hlíðavelli í Mosfellsbæ á fyrsta degi Íslandsmótsins í holukeppni í dag.

Pamela Ósk var langefst af þeim kylfingum sem tryggðu sér sæti í 16-manna úrslitum en þau verða leikin á sunnudaginn ásamt átta manna úrslitum.

Hún lék fyrri hring dagsins á 73 höggum og þann síðari á 69 höggum, samtals 142. Í öðru sæti var Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr Golfklúbbi Selfoss á sex höggum yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert