Blakkonan Jóna Margrét Arnarsdóttir er gengin til liðs við Íslandsmeistara KA fyrir komandi tímabil.
Jóna er uppalin á Akureyri og snýr aftur heim eftir tvö ár í atvinnumennsku á Spáni þar sem hún lék með liðinu Sant Joan d'Alacant.
Jóna, sem er 22 ára, mun ekki aðeins leika með liðinu heldur tekur hún líka við sem verkefnisstjóri blakdeildar.
KA hefur orðið Íslandsmeistari fjögur ár í röð og fimm sinnum í heildina.