Landsliðskonan með tvennu fyrir toppliðið

Sædís Rún Heiðarsdóttir.
Sædís Rún Heiðarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sædís Rún Heiðarsdóttir átti stórleik fyrir Vålerenga þegar hún skoraði tvívegis í 7:0-sigri á Hönefoss í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Sædís Rún var á sínum stað í byrjunarliði Vålerenga í stöðu vinstri vængbakvarðar og skoraði fyrstu tvö mörkin fyrir heimakonur.

Fyrst skoraði hún á sjöttu mínútu og svo á 58. mínútu. Fór landsliðskonan svo af velli á 63. mínútu þegar staðan var orðin 3:0.

Vålerenga er ríkjandi Noregsmeistari og er áfram á toppi deildarinnar, nú með 36 stig, eftir 14 leiki. Brann er skammt undan með 35 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert