Fluminense frá Brasilíu og þýska stórliðið Dortmund gerðu markalaust jafntefli í leik liðanna á HM félagsliða karla í knattspyrnu í New Jersey í dag.
Liðin eru með sitthvort stigið eftir fyrstu umferðina en Mamelodi Sundowns frá Suður-Afríku og Ulsan HD frá Suður-Kóreu eru með liðunum í riðli og mætast í kvöld.
Þetta var þriðja markalausa jafnteflið á mótinu. Jobe Bellingham spilaði þá sinn fyrsta leik fyrir Dortmund en hann var keyptur frá Sunderland á dögunum.