Stórþjóðirnar áfram í átta liða úrslitin

Franska liðið fór mikinn í dag.
Franska liðið fór mikinn í dag. AFP/Joe Klamar

Stórþjóðirnar Spánn, Ítalía, Portúgal og Frakkland eru allar komnar áfram í átta liða úrslit á U21 árs Evrópumóti karla í knattspyrnu í Slóvakíu. 

Spánn og Ítalía mættust í kvöld og gerðu jafntefli, 1:1. Spánn vann A-riðilinn með sjö stig, jafnmörg og Ítalía en fleiri mörk skoruð. Jesus Rodriguez skoraði mark Spánar en Niccolo Pisilli skoraði mark Ítalíu.

Heimamenn í Slóvakíu höfnuðu síðan í þriðja sæti með þrjú stig eftir sigur á Rúmeníu, 2:1, í kvöld. Rúmenía hafnaði í fjórða án stiga. 

Portúgal og Frakkland sannfærandi 

Portúgal vann þá C-riðilinn, líka á markatölu, með sjö stig en Frakkar höfnuðu í öðru sæti. Georgía hafnaði í þriðja sæti með þrjú stig og Pólland í fjórða með ekkert. 

Portúgal vann Georgíu, 4:0. Lasha Odisharia fékk rautt spjald í byrjun leiks í liði Georgíu og eftir það tók Portúgal völdin. 

Rodrigo Pinheiro, Geovany Quenda, Rodrigo Gomes og Henrique Araujo skoruðu mark Portúgals. 

Frakkland vann þá Pólland, 4:1. Djaoui Cisse skoraði tvö mörk fyrir Frakkland en hin mörk liðsins skoruðu Nathan Zeze og Matthis Abline. Mark Póllands skoraði Ariel Mosor. 

Frakkland mætir Danmörku í átta liða úrslitunum en enn er óljóst hverjum hin liðin mæta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert