Enska knattspyrnufélagið Sheffield United hefur tilkynnt að Rubén Sellés sé nýr knattspyrnustjóri karlaliðsins. Um leið hefur Chris Wilder verið vikið frá störfum.
Sheffield United hefur því ákveðið að prófa að ráða ungan og spennandi knattspyrnustjóra í stað hins gamalreynda Englendings.
Sellés, sem er 42 ára Spánverji, skrifaði undir þriggja ára samning. Hann var síðast þjálfari Hull City og tókst að halda liðinu í ensku B-deildinni, sem Sheffield United leikur einnig í.
Wilder er á 58. aldursári sem hefur marga fjöruna sopið og stýrði liðinu frá 2023 til 2025. Hann hafði þá áður gert það frá 2016 til 2021.