Útskýrði brottreksturinn eftir Evrópusigurinn

Daniel Levy stjórnarformaður Tottenham.
Daniel Levy stjórnarformaður Tottenham. AFP

Daniel Levy stjórnarformaður Tottenham útskýrði af hverju Ange Postecoglou var rekinn sem stjóri karlaliðsins, þrátt fyrir að hafa gert það að Evrópudeildarmeistara. 

Postecoglou var rekinn fyrr í þessum mánuði og er Daninn Thomas Frank, sem stýrði áður Brentford, tekinn við. 

Postecoglou stýrði Tottenham til fyrsta bikars liðsins í 17 ár og fyrsta Evrópubikars þess í 41 ár. 

Þrátt fyrir það var gengið í deildinni mjög lélegt en Tottenham hafnaði í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. 

„Þú sást hvað þetta þýddi fyrir alla hjá Tottenham, leikmenn, starfsmenn og stuðningsmenn. Þetta var alveg ótrúlegt, við unnum Evrópubikar.

Hins vegar er það ekki nóg. Það sem við gerðum ekki skiptir meira máli, við verðum að vinna deildina. Við viljum vinna hana og Meistaradeildina, við stefnum hátt,“ sagði Levy við Sky Sports en hann sagðist þó einnig vera ansi þakklátur Postecoglou. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka