Manor Solomon, ísraelskur landsliðsmaður og leikmaður Tottenham, er fastur í heimalandinu eftir að átök á milli Írans og Ísraels hófust í síðustu viku.
Lofthelgi Ísraels hefur verið lokað og kemst Solomon ekki úr landinu vegna þess.
Solomon, sem er 25 ára, giftist Dana Voshina á fimmtudaginn en þau héldu brúðkaupið í Ísrael.
Tottenham er í sambandi við sóknarmanninn en hann var að láni hjá Leeds United í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð.