Ákærður fyrir ljót ummæli um Klopp

David Coote.
David Coote. AFP/Paul Ellis

David Coote, fyrrverandi dómari í ensku úrvalsdeildinni, hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu vegna ummæla sem hann lét falla um Jürgen Klopp, fyrrverandi stjóra Liverpool. Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá þessu.

Í byrjun nóvember á síðasta ári fór myndband í dreifingu á samfélagsmiðlum af Coote þar sem hann hraunaði yfir Klopp. Skömmu síðar fór annað myndband í dreifingu af Coote sniffa hvítt duft.

Coote var settur stuttu eftir að myndböndin fóru í dreifingu og mánuði síðar var hann rekinn af enska dómarasambandinu.

Í byrjun árs tjáði Coote sig um málið þar sem hann kom út úr skápnum og viðurkenndi kókaínnotkun.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert