Faðir ungverska knattspyrnumannsins Milos Kerkez hefur staðfest að sonurinn sé á leið til Liverpool frá Bournemouth.
Bournemouth og Liverpool hafa undanfarið átt í viðræðum um söluna á Kerkez, sem er 21 árs vinstri bakvörður sem átti mjög gott síðasta tímabil fyrir fyrrnefnda liðið í ensku úrvalsdeildinni.
„Það er einungis Liverpool sem kemur til greina hjá okkur og við erum ekki að fara neitt annað. Við munum ekki tala við önnur félög.
Það er allt klárt hvað okkur varðar. Við eigum bara eftir að klára nokkur smáatriði en þetta er svo gott sem klappað og klárt,“ sagði Sebastijan, faðir og umboðsmaður Milos, í serbneska spjallþættinum Super Indirektno kod Popa i Milana.
Vísaði hann þar til þess að Milos væri búinn að samþykkja kaup og kjör hjá Liverpool en að félögin ættu eftir að koma sér saman um nokkur smáatriði.
Sebastijan sagði þá feðga treysta Richard Hughes, íþróttastjóra Liverpool, fullkomlega en hann sinnti svipuðu starfi hjá Bournemouth um árabil og fékk Kerkez til liðs við félagið fyrir tveimur árum.
„Við tókum þessa ákvörðun. Richard Hughes samdi við Milos fyrir Bournemouth og það er maður sem stendur við loforð sín. Ef hann segði okkur að fara til Indlands myndum við hitta hann á Indlandi.“