Fylgir hjartanu sjaldan í fótbolta

Sindri Kristinn Ólafsson
Sindri Kristinn Ólafsson Ljósmynd/Þórir Tryggvason

„Við fengum allt of mörg færi á okkur í þessum leik og vorum að gefa mörk,“ sagði Sindri Kristinn Ólafsson markvörður Keflavíkur í samtali við mbl.is eftir tap gegn Stjörnunni, 4:2, í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld.

„Stjarnan átti sigurinn skilið. Við gáfum allt í þetta en það dugði ekki til. Við komumst tvisvar yfir. Fyrst jafnaði Emil úr helvíti góðri aukaspyrnu. Við komumst svo aftur yfir en þeir jafna og hausinn var ekki alveg rétt skrúfaður.

Við fengum þetta fjórða mark á okkur mark upp úr horni sem við máttum ekki við. Ég er samt stoltur af því að við lögðum allt í þetta. Stjarnan er betri en við í dag en við gáfum þeim góðan leik,“ sagði hann.

Sindri fór tvívegis fram í hornspyrnum Keflvíkinga undir lokin og það tók á.

Keflvíkingar fagna marki í kvöld.
Keflvíkingar fagna marki í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

„Ég var að tala við móður mína uppi í stúku og ég sagði henni að ég fann fyrir seinni sprettinum. Ég tók Joe Hart á þetta. Ég hef ekki æft skalla, ég er meira að reyna að soga menn að mér og búa til pláss fyrir aðra. Ég fer ekki fram til að fá færin.“

Sindri er uppalinn hjá Keflavík en lék síðustu tvö tímabil með FH, áður en hann skipti aftur til Keflavíkur fyrir þetta tímabil.

„Mín staða hjá Fimleikafélaginu breyttist með komu Matthiasar. Þeir vildu halda mér og mér leið vel hjá FH. Maður fylgir hjartanu sjaldan í fótbolta og ég fékk tilboð annars staðar en hjartað mitt sagði Keflavík.

Mér líður ógeðslega vel í Keflavík og þetta er mitt félag. Ég horfi ekki á þetta sem skref til baka, heldur vil ég vinna með félaginu sem ég er í núna. Þessi félagaskipti tengdust minna fótboltanum og meira hjartanu og minni líðan,“ sagði Sindri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert