Samúel Kári Friðjónsson, knattspyrnumaðurinn fjölhæfi hjá Stjörnunni, var kátur er hann ræddi við mbl.is eftir sigur liðsins á uppeldisfélaginu Keflavík í bikarnum í kvöld. Með sigrinum, 4:2, tryggði Stjarnan sér sæti í undanúrslitum.
„Að sjálfsögðu var sértakt að mæta Keflavík. Þetta er félagið mitt og ég var þarna í yngri flokkunum. Ég náði tveimur leikjum en þó aðeins 85 mínútum seinni leiknum því ég fékk rautt á móti Val. Þetta er heimabærinn minn og alltaf sérstakt.“
Stjarnan var mun sterkari aðilinn en lenti þrátt fyrir það tvisvar undir. Það kom ekki að sök.
„Mér fannst við frábærir allan leikinn. Þetta voru tvö atriði þar sem slokknaði á okkur. Við þurfum bara að bæta það. Annars var þetta frábær leikur hjá okkur.
Við vorum að spila það vel að mér leið vel. Við töluðum um það að halda áfram að spila okkar leik ef við lendum undir og við gerðum það. Við fengum fullt af færum.“
Samúel er spenntur fyrir undanúrslitum í bikar, þar sem Stjörnumenn ætla sér alla leið.
„Næsti leikur er Skaginn en við ætlum að taka bikarinn líka,“ sagði Samúel.