Hinn geðþekki Englendingur Nik Chamberlain, þjálfari kvennaliðs Breiðabliks í Bestu deild kvenna í knattspyrnu, var hæstánægður eftir 2:0 sigur Breiðabliks á Þór/KA í dag.
Sigurinn kom Blikakonum á toppinn en FH og Þróttur eru með jafn mörg stig og Breiðablik. Liðin þrjú hafa stungið af í deildinni og munu sjálfsagt berjast um Íslandsmeistaratitilinn eitthvað fram á haustið.
Nik kom í stutt spjall eftir leik og hrósaði leikmönnum sínum í hástert.
„Við spiluðum mjög vel. Þetta var ekki eins og við gerum venjulega en við náðum að spila í svæði og opna vel á stungusendingar og kantana. Ég var þó mest ánægður með varnarvinnuna okkar, hvernig við brutum allt niður og unnum bolta fljótt aftur eftir að hafa misst hann til Þórs/KA.
Í raun fannst mér Þór/KA ekki skapa nein alvöru færi. Sandra María náði skoti í slána í blálokin en okkur tókst virkilega vel að loka á hana og samherja hennar. Mér fannst frammistaðan í dag heilsteypt og góð.“
Þið byrjuðuð með miklum krafti og virtust ætla að hlaupa yfir heimakonur fyrstu tuttugu mínúturnar.
„Hárrétt. Við komum inn með hátt orkustig og mikinn kraft. Fyrsti hálftíminn hjá okkur var frábær hvað þetta varðar. Við stjórnuðum þessu algjörlega. Við vorum hættulegar, sköpuðum góð færi og gáfum engin grið.
Liðið fær hrós fyrir að mæta svona grimmt til leiks. Við hefðum sjálfsagt getað sýnt meiri þolinmæði á köflum en þetta skilaði tveimur mörkum og góðum sigri á góðu liði,“ sagði stoltur kappinn að lokum.