Skjálftinn stærri en fyrstu tölur gáfu til kynna

Upptök skjálftans voru á Krýsuvíkursvæðinu.
Upptök skjálftans voru á Krýsuvíkursvæðinu. mbl.is/Árni Sæberg

Jarðskjálfti sem átti upptök sín á Krýsuvíkursvæðinu fannst vel á suðvesturhorni landsins um klukkan hálfellefu.

Á vef Veðurstofunnar segir að skjálftinn hafi verið 3,4 að stærð. Eru það mælingar sem búið er að fara yfir. Fyrstu tölur gáfu til kynna að skjálftinn hefði verið 2,8 að stærð.

Nokkrir minni skjálftar fylgdu í kjölfarið.

Uppfært klukkan 23.00:

Upptök skjálftans voru í Móhálsadal, rétt vestan Krýsuvíkur á Reykjanesskaga. Ríflega tuttugu eftirskjálftar hafa fylgt. Eru þeir á um 2-6 km dýpi. 

Veðurstofunni hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert