Vladimír Pútín forseti Rússlands sagði að samkomulag til að binda enda á átökin milli Ísraels og Írans væri mögulegt og að árásir Ísraels á Íran hefðu leitt til „samstöðu“ í írönsku samfélagi í kringum forystu landsins.
„Við sjáum að í dag í Íran er samstaða í samfélaginu í kringum pólitíska forystu landsins,“ sagði Pútín á blaðamannafundi með erlendum blaðamönnum í kvöld.
„Þetta er viðkvæmt mál og auðvitað þurfum við að fara mjög varlega, en að mínu mati er hægt að finna lausn,“ bætti hann við og vísaði til mögulegs samkomulags sem væri í þágu bæði Ísraels og Írans.
Pútín hefur verið iðinn við að tjá sig um átökin milli Ísraels og Írans síðan árásir Ísraela hófust fyrir helgi og meðal annars hvatt til þess að lausn verði leitað í gegnum pólitískar og diplómatískar leiðir.
Þá hafa rússnesk yfirvöld boðist til að miðla málum í átökunum en Donald Trump Bandaríkjaforseti gerði lítið úr því tilboði fyrr í dag.
„Hann bauðst reyndar til að hjálpa til við sáttamiðlunina. „Ég sagði gerðu mér greiða, leitaðu sátta í þínu eigin stríði. Við skulum leita sátta fyrir Rússlandi fyrst, allt í lagi?““ sagði Trump og bætti við:
„Ég sagði Vladimír, við skulum leita sátta fyrir Rússlandi fyrst, þú getur haft áhyggjur af þessu síðar.“
Á blaðamannfundinum í kvöld gerði Pútín NATO-samstarfið sömuleiðis að umræðuefni og hélt því fram að fyrirætlanir ríkja sambandsins um að auka hernaðartengd útgjöld væru ekki ógn við Rússland.
„Við lítum ekki á neina endurvopnun NATO sem ógn við Rússneska sambandsríkið, því við erum sjálfum okkur nóg hvað varðar að tryggja eigið öryggi,“ sagði Pútín við blaðamenn.
Hann bætti við að Rússland væri „stöðugt að nútímavæða herafla okkar og varnargetu“.