Í dag má búast við suðvestlægri eða breytilegri átt og 3-10 metrum á sekúndu, hvassast við suðurströndina.
Búast má við dálítilli rigningu eða súld um landið vestanvert og síðdegisskúrum austan til.
Hiti verður á bilinu 7 til 16 stig, hlýjast fyrir austan.
Þá má búast við því að það dragi úr vætu í nótt og á morgun verði suðlæg eða breytileg átt með 3-8 metrum á sekúndu. Skúrir verða á víð og dreif en úrkomumeira þegar líður á daginn og heldur svalara.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að í dag verði grunn smálægð skammt norður af Húnaflóa og vindátt vestlæg eða breytileg á köflum. Allvíða verði væta á vestanverðu landinu en úrkomuminna fyrir austan þar sem megi engu að síður búast við síðdegisskúrum.
Á morgun verði útlit fyrir suðlægari vind enda áhrif næstu smálægðar farin að gæta vestan til. Framan af degi verði úrkomulítið en síðdegis fari að bæta í. Yfirleitt verði þurrt á Austurlandi og lengi framan af líka á Norðurlandi. Líklega verði hlýjast fyrir norðan en fremur milt verður engu að síður.
Dagarnir þar á eftir séu enn á huldu. Allnokkrar smálægðir keppist um að ná yfirráðum á svæðinu og spár sífellt að breytast. Eins og staðan sé núna sé útlit fyrir fremur vætusama helgi.