Leitinni að Sigríði Jóhannesdóttur hefur verið frestað um sinn.
Björgunarsveitir leituðu Sigríðar í Elliðaárdal frá klukkan eitt í dag til hálfellefu í kvöld.
Þetta sagði upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við mbl.is.
Sigríðar hefur verið saknað síðan á föstudagskvöld.
Lögreglan biður þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Sigríðar að hafa samband við lögregluna í síma 112 eða 444 1000 eða með tölvupósti á netfangið 100@lrh.is.