Þetta er í boði 17. júní

Hátíðardagskrá er í boði víðs vegar um landið á morgun, …
Hátíðardagskrá er í boði víðs vegar um landið á morgun, 17. júní. mbl.is/Eyþór

Mikla dag­skrá er að finna víðs veg­ar um landið á morgun, þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Dagurinn verður haldinn hátíðlegur og eitt­hvað að finna fyr­ir alla fjöl­skyld­una í flestum landshlutum.

Dagskráin í Reykjavík

Að venju hefst dagskráin í Reykjavík á hátíðarathöfn á Austurvelli klukkan 11.00. Þar mun forseti Íslands leggja blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og flytja hátíðarræðu. Fjallkonan flytur þar einnig ávarp og skrúðganga fer svo frá Austurvelli upp í Hólavallakirkjugarð.

Skrúðganga verður gengin frá Hallgrímskirkju klukkan 13.00 að hátíðarsvæðinu í Hljómskálagarðinum. Leynigestir munu slást í hópinn í gegnum gönguna og mun Lúðrasveitin Svanur leika undir.

Margt verður um að vera víða um borgina og þar á meðal opið hús í Hússtjórnarskóla Reykjavíkur, þjóðhátíðargleði í Árbæjarsafninu, Emmsjé Gauti og VÆB í Hljómskálagarðinum og margt fleira.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar um dag­skrána í Reykjavík er að finna hér.

Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Dagskráin í Hafnarfirði

Í Hafnarfirði er einnig þétt dagskrá frá morgni til kvölds og munu BMX brós, Una Torfa, Emmsjé Gauti og fleiri koma fram í miðbæ Hafnarfjarðar.

Víkingahátíðin verður á sínum stað á Víðistaðatúni, skrúðganga verður gengin frá Flensborgarskóla niður á Thorsplan og verða þar skemmtiatriði og veitingar af ýmsum gerðum.

Boðið verður einnig upp á krakka-karaókí, andlitsmálun, hoppukastala og listasýningar.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar um dag­skrána má finna hér.

Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær

Dagskráin í Garðabæ

Í Garðabæ verður einnig nóg um að vera og munu Skátafélagið Vífill og Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar leiða göngu frá Hofsstaðatúni við Hofsstaðaskóla klukkan 13.00.

Göngunni lýkur á Garðatorgi þar sem boðið verður upp á skemmtiatriði og hoppukastala. Margrét Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar flytur ávarp og fjallkona, sem klæðist skautbúningi Kvenfélags Garðabæjar, flytur ljóð. Aron Can, Prettyboitjokko, Elsa úr Frost, Latibær og fleiri skemmtilegir stíga á svið og munu skátarnir selja popp og kandífloss.

Kvenfélagskaffið verður einnig á sínum stað ásamt andlitsmálun og kvöldtónleikum.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar um dag­skrána má finna hér.

Ljósmynd/Garðabær

Dagskráin í Kópavogi

Nóg verður um að vera í Kópavogi á morgun. Skemmtidagskrá verður bæði á Rútstúni og við Versali og verður einnig dagskrá við Menningarhús bæjarins.

Skrúðganga með skólahljómsveit Kópavogs og Skátunum fer frá MK og lýkur á Rútstúni, þar sem fram koma fjallkona Kópavogs, Bríet, Aron Can, Bógómil Font, Leikhópurinn Lotta og Bestu lög barnanna. Kynnar verða Gunni og Felix.

Við Versali koma fram Bríet, Aron Can, Bógómil Font, Leikhópurinn Lotta og Bestu lög barnanna og verða Saga Garðars og Snorri Helga kynnar.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar um dag­skrána má finna hér.

Ljósmynd/Kópavogsbær

Dagskráin í Mosfellsbæ

Dagskráin í Mosfellsbæ hefst með há­tíð­ar­guðs­þjón­usta í Lága­fells­kirkju klukkan 11.00.

Skrúðganga verður svo gengin frá Miðbæjartorginu að Hlégarði þar sem fjölskyldudagskrá tekur við með skemmtiatriðum.

Árleg aflrauna­keppni verður á Hlé­garðstún­inu og hoppu­kastal­ar, sölutjöld, skáta­leik­ir, pylsu­sala, and­lits­málun og margt fleira í Hlégarði.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar um dag­skrána má finna hér.

Ljósmynd/Mosfellsbær

Dagskráin á Seltjarnarnesi

Mikið verður um að vera og fjölbreytt dagskrá á Seltjarnarnesi fyrir alla fjölskylduna.

Klukkan 10 bjóða Siglingafélagið Sigurfari og Björgunarsveitin Ársæll börnum í fylgd með fullorðnum upp á bátsferðir frá smábátahöfninni við Bakkavör. Björgunarvesti fyrir alla. Siglingar eru háðar veðurfari.

Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari klukkan 11 og Dr. Svana Helen Björnsdóttir verkfræðingur, bæjarfulltrúi og formaður sóknarnefndar flytur hugleiðingu. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Rótarýmenn taka þátt í messunni og bjóða upp á kaffiveitingar í þjóðhátíðarstíl eftir messu í safnaðarheimilinu.

Skrúðganga fer frá Leikskóla Seltjarnarness yfir í Bakkagarð klukkan 12.45.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar um dag­skrána má finna hér.

Dagskráin á Akureyri

Á Akureyri fer skrúðganga Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitar Akureyrar af stað frá Gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti klukkan 12.30 og heldur í Lystigarð þar sem hátíðarhöld fara fram.

Blómabíll Akureyrar leggur einnig af stað frá Naustaskóla klukkan 11.00. Hann keyrir í gegnum íbúðahverfin, niður Listagilið, eftir Strandgötunni og víðar þar sem ómur berst frá palli bílsins með viðeigandi 17. júní lögum.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar um dag­skrána má finna hér.

Ljósmynd/Akureyrarbær

Dagskráin í Reykjanesbæ

Líklega stærsti fáni landsins verður dreginn að húni á fánastönginni í skrúðgarðinum í Keflavík á morgun. Að venju fer einnig fram hátíðardagskrá sem hefst með hátíðarguðsþjónustu í Keflavíkurkirkju og skrúðgöngu að henni lokinni í skrúðgarðinn í Keflavík.

Þar fer fram fánahylling, setningarræða, ávarp fjallkonu, ræða dagsins og flutningur Lofsöngsins. Að hátíðardagskrá lokinni fer fram skemmtidagskrá.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar um dag­skrána má finna hér.

Ljósmynd/Reykjanesbær

Dagskráin í Hveragerði

Í Hveragerði verður hægt að láta reyna á sig í þrautabraut sem opin verður allan daginn, frá klukkan 9.00 til 19.00. 

Þá verður í boði að fara á hestbak, skrúðgöngur, þjóðbúningakaffi og fleira.

Hátíðardagskrá verður í Lystigarði þar sem fjallkonan les ljóð og fram koma meðal annars GDRN, VÆB og Anna úr Frost.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar um dag­skrána má finna hér.

Dagskráin á Selfossi

Dagskráin verður einnig þétt á Selfossi en þar verður meðal annars boðið upp á morgunjóga, hestbak, bílasýningu, andlitsmálun, siglingu og kvöldvöku.

Hátíðardagskrá verður í Sigtúnsgarði þar sem fjallkonan ávarpar lýðinn og fulltrúi Sveitarfélagsins Árborgar fer með hátíðarræðu.

Þá verður fjölskylduhátið einnig í Sigtúnsgarði þar sem VÆB, Sveppi og Ávaxtakarfan koma fram með fleirum.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar um dag­skrána má finna hér.

Ljósmynd/Selfoss

Dagskráin á Ísafirði

Sérstök hátíðardagskrá verður á Ísafirði í ár í tilefni 100 ára afmælis Safnahússins. Opið hús verður í Safnahúsinu frá klukkan 14.30 til 17.00 og meðal annars boðið upp á afmælisköku og skoðunarferð um endurbætt húsið. Gamlar ljósmyndir verða til sýnis meðal annarra verka.

Hátíðardagskrá verður einnig á Eyrartúni og mun lúðrasveitin leika þar fjörug lög ásamt því að hátíðarræða og ávarp fjallkonu munu flutt þar. Þá verða hoppukastalar, andlitsmálun, karamelluregn, börnum boðið á hestbak og sölutjöld körfuknattleiksdeildar Vestra.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar um dag­skrána má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert