Funda um átök Írans og Ísraels

Árásirnar hafa haldið áfram linnulaust síðustu daga en vika er …
Árásirnar hafa haldið áfram linnulaust síðustu daga en vika er síðan að Ísrael gerði fyrstu árásirnar á Íran. AFP/Mohammed Huwais

Utanríkisráðherrar Frakklands, Þýskalands og Bretlands stefna að því að funda með utanríkisráðherra Írans í Genf á morgun. Á fundinum verður einnig æðsti erindreki Evrópusambandsins. 

Boðað er til fundarins á sama tíma og Evrópulönd hafa kallað eftir því að Ísrael og Íran dragi úr árásum sínum. Árásir milli ríkjanna hafa haldið áfram linnulaust síðustu daga en vika er síðan að Ísrael efndi til fyrstu árásanna á Íran. 

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun einnig koma saman á morgun til að ræða yfirstandandi stríð milli ríkjanna. Fundurinn var boðaður að beiðni Írans. 

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað við því að hann íhugi hernaðaraðgerðir gegn kjarnorkumannvirkjum Írans. Ísrael segir markmið árása sinna vera að koma í veg fyrir að Íran eignist kjarnorkuvopn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert